Samherji gagnrýnir harðlega umfjöllun Ríkisútvarpsins síðustu daga um fund rann­sókna­fyr­ir­tæk­is­ins PPP og Jónasar Helgasonar, fyrrverandi lögreglumanns sem hafði starfað fyrir gjaldeyriseftirlit Seðlabankans, frá árinu 2012 þar sem rannsókn eftirlitsins á Samherja var rædd.

Samherji lýsir umfjölluninni sem ómaklegri tilraun til að bendla fyrirtækið við fundinn sem átti sér stað fyrir þrettán árum.

„Fundurinn er sagður hafa átt sér stað um hálfu ári eftir að viðkomandi lét af störfum hjá gjaldeyriseftirlitinu. Lögreglumaðurinn fyrrverandi er í fréttinni sagður „rannsakandi“ í svokölluðu Seðlabankamáli, þrátt fyrir að hafa látið af störfum skömmu eftir að Seðlabankamálið hófst árið 2012,“ segir á vef Samherja.

„Vart þarf að rifja upp að því máli lauk á árinu 2018 með fullnaðarsigri Samherja fyrir dómstólum.“

Fimm ára gömul frétt Heimildarinnar endurflutt

Samherji finnur mjög að vinnubrögðum RÚV. Útgerðarfélagið segist þó alls ekki gera þá kröfu að vera stikkfrítt undan gagnrýninni umfjöllun fjölmiðla. Hins vegar verði að gera kröfu um umræða sé málefnaleg.

„Þeir sem fjármagna rekstur Ríkisútvarpsins hljóta að spyrja sig hvort útvarp allra landsmanna sé orðið að endurvinnslustöð fyrir dagblað á jaðri íslenskrar fjölmiðlunar?“

Samherji bendir á að Ingi Freyr Vilhjálmsson, fréttamaður RÚV sem stóð fyrir umfjölluninni, hafi fjallað um ofangreint mál í Stundinni, sem heitir nú Heimildin, á árinu 2020.

„Því var Ríkisútvarpið í reynd að endurflytja fimm ára gamla frétt í þættinum þótt umfjöllunin hafi verið klædd í þann búning að um væri að ræða nýjar og áður óbirtar upplýsingar.“

Samherji segir að í fréttaflutningi á vef RÚV hafi verið reynt að tengja Samherja við samskipti Jónasar og eigenda PPP með óeðlilegum hætti.

„Fyrirsagnir og myndskreytingar gengu út á að blekkja, afvegaleiða og valda fólki skaða, fremur en að upplýsa lesendur. Er þetta enn einn dapurlegur vitnisburður um þau óvönduðu vinnubrögð sem fá að þrífast í Efstaleiti á vakt núverandi útvarpsstjóra.“

Fram kemur að skriflegar spurningar hafi borist Samherja frá Inga Frey sama dag og þátturinn var fluttur. Samherji segir að þetta vinnulag hans sé þekkt.

„Á miðvikudag hélt sami fréttamaður Ríkisútvarpsins áfram að vitna í fimm ára gamlar umfjallanir úr eigin smiðju, þar sem dylgjur í garð Samherja héldu áfram. Í frétt miðvikudagsins er sérstaklega tekið fram að engin skrifleg gögn úr gagnaleka frá embætti héraðssaksóknara liggi til grundvallar fréttinni. Heldur vísar blaðamaðurinn í gamlar fréttir og segir að „ljósi hafi verið varpað á gamla ráðgátu um Samherja“. Þó er engar nýjar upplýsingar að finna í frétt miðvikudagsins.

Aftur er eingöngu um endurvinnslu á gömlu efni að ræða. Umfjöllunin frá 2020 byggði á veikum grunni og hún gerir það ennþá árið 2025.“

Spyrja hvort Ingi Freyr sé hæfur til að fjalla um sig

Þá segir Samherji að engum dyljist andúð Inga Freys á félaginu og starfsfólki þess. Hann hafi skrifað hundruð greina um félagið á undanförnum árum „þar sem markmiðið er jafnan að tortryggja Samherja og starfsfólk fyrirtækisins“.

„Þrátt fyrir að blaðamenn lúti ekki formlegum hæfisreglum, er vert að spyrja hvort ákveðnir blaðamenn séu hreinlega hæfir til að fjalla um málefni félagsins?“