Framkvæmdastjóri Íslenska lífeyrissjóðsins, Ólafur Páll Gunnarsson, veltir fyrir sér í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag hvort að þóknanir erlendra vörsluaðila sem bjóða upp á viðbótarlífeyrissparnað hér á landi séu í samræmi við íslensk lög.

Hann bendir á að lífeyrisiðgjald njóti sérstakrar verndar í lögum enda hluti þeirra grunnréttinda sem samið er um í kjarasamningum. Þetta endurspeglist í lögum um lífeyrissjóði en samkvæmt þeim á aðeins að verja lífeyrisiðgjaldi til öflunar lífeyrisréttinda en óheimilt að ráðstafa því í þóknanir eða annan kostnað.

„Gilda sömu reglur um starfsemi allra vörsluaðila lífeyrissparnaðar sem hér starfa og lúta þeir ekki allir eftirliti Seðlabankans? Er réttur neytenda tengdur lífeyrissparnaði nægjanlega tryggður?“ spyr Ólafur Páll.

Hann setur þóknanir erlendu vörsluaðilanna, Allianz, Bayern-Líf og VPV, í samhengi við umfjöllun stjórnvalda árið 2009 um breytingar á reglum sparnaðarleiðar tiltekins innlends vörsluaðila viðbótarlífeyrissparnaðar. Samkvæmt samningsskilmálum leiðarinnar átti 50% iðgjalds að fara í kostnað fyrsta árið og ekkert eftir það).

„Í úrskurði fjármálaráðuneytisins var undirstrikað að lífeyrisiðgjaldi skyldi aðeins verja til öflunar lífeyrisréttinda. Samningsskilmálar sem mæltu fyrir um að iðgjaldi yrði ráðstafað með öðrum hætti væru ólögmætir að mati ráðuneytisins. Í framhaldi var sparnaðarleiðinni lokað og inneignum sjóðfélaga ráðstafað annað.“

Háar þóknanir einkenni erlendar lífeyristryggingar

Ólafur Páll er annar forsvarsmaður lífeyrissjóðs sem hefur gagnrýnt viðbótarlífeyrissparnað erlendra vörsluaðila opinberlega upp á síðustu vikum.

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, benti í grein í Viðskiptablaðinu í síðasta mánuði á að kostnaðarhlutföll hjá þýskum líftryggingafélög séu talsvert hærri en hjá lífeyrissjóðum auk þess sem ávöxtun hefur verið mun lakari hjá erlendu aðilunum á undanförnum árum.

Ólafur Páll bendir á að auk lífeyrissjóða og innlendra vörsluaðila lífeyrissparnaðar bjóði þrír erlendir vörsluaðilar upp á þjónustu tengda séreignarlífeyrissparnaði hér á landi í formi lífeyristryggingar, þ.e. Allianz, Bayern-Líf og VPV.

Hann segir að starfsemi erlendu aðilanna sé tvíþætt. Annars vegar er um að ræða umboðs- eða söluaðila hér á landi og hins vegar erlendan samstarfsaðila sem ávaxtar fjármunina eftir skilmálum tryggingasamnings. Eina hlutverk umboðsaðilans sé að koma á samningi milli launþega og erlenda aðilans.

„Eitt af því sem einkennir erlendar lífeyristryggingar eru háar þóknanir og fyrirkomulag þeirra [‏‏‏...] Til að standa undir kostnaði er tekinn umsýslu- og rekstrarkostnaður af viðkomandi sjóði og ávöxtun hans í samræmi við lög en það sama á við um eignaumsýslu erlendu aðilanna,“ segir Ólafur Páll.

„Hjá íslenskum lífeyrissjóðum og innlendum vörsluaðilum er ekki tekinn kostnaður af lífeyrisiðgjaldi enda hefur slík gjaldtaka verið úrskurðuð ólögmæt eins og áður segir. Hjá þeim rennur allt lífeyrisiðgjaldið óskipt í sjóð eða inn á reikning í eigu rétthafa.“

Fjórðungur fari í þóknun fyrstu fimm árin

Hann segir að í dæmigerðu tilviki hjá Allianz á Íslandi nemi þóknun 25,8% af lífeyrisiðgjaldi fyrstu 5 ár samningstímans. Upphafsþóknun upp á 20,5% fellur niður eftir fimm ár og þóknun sé 5,3% eftir það út 40 ára samningstímann.

Á heildartíma samnings hjá Allianz fari 7,9% lífeyrisiðgjalds í þóknanir en í ofangreindri sparnaðarleiði sem var lokað árið 2009 var sambærilegt hlutfall 1,2%.

Þessi mynd fylgdi grein Ólafs Páls.

Ólafur Páll segir að háar þóknanir erlendra lífeyristrygginga endurspeglist í tekjum umboðsaðilanna hér á landi.

Samkvæmt nýútgefnu ársuppgjöri Íslandsbanka, móðurfélags Allianz Ísland hf., námu þóknanatekjur Allianz á árinu 2024 um tveimur milljörðum króna. Langstærsti hluti tekna félagsins komi frá þóknunum af lífeyrisiðgjaldi.

Langtímaskuldbinding

Ólafur Páll segir að lífeyrissparnaður erlendu aðilanna, oft nefndur lífeyristrygging, sé að mörgu leyti frábrugðinn hefðbundnum lífeyrissparnaði.

„Hefðbundinn séreignarlífeyrissparnaður er peningaleg inneign þar sem hægt er að taka inneign út í heild eða að hluta við 60 ára aldur án nokkurra skerðinga. Samningar um lífeyristryggingu eru hins vegar flóknir og fela jafnan í sér langtímaskuldbindingu af hálfu réttahafans.“