Elon Musk hefur sett í loftið skoðanakönnun á Twitter-reikningi sínum þar sem hann spyr notendur hvort hann eigi að segja af sér sem forstjóri samfélagsmiðilsins. Hann tekur jafnframt fram að hann muni fara eftir niðurstöðum kosningarinnar.

Hægt er að greiða atkvæði til kl. 10:20 á íslenskum tíma. Eins og stendur hafa um 16 milljónir greitt atkvæði en 57,4% vilja að Musk segi af sér sem forstjóri.

Skoðanakönnunin kemur í kjölfar gagnrýni á nýja stefnu Twitter um að banna notendum að deila hlekkjum á reikninga sína á öðrum samfélagsmiðlum, þar á meðal Facebook, Instagram, Truth Social og Mastodon.

„Við vitum að margir notendur okkar eru virkir á öðrum samfélagsmiðlum. Héðan í frá mun Twitter hins vegar ekki heimila fría auglýsingu fyrir ákveðna samfélagsmiðla á Twitter,“ skrifaði fyrirtækið í færslu.

Musk lokaði einnig nýlega á Twitter reikninga tveggja þekktra bandarískra blaðamanna, Ryan Mac hjá New York Times og Donie O‘Sullivan, eftir að þeir brutu reglur samfélagsmiðilsins um að deila ekki ákveðnum upplýsingum um staðsetningu einstaklinga.