Seðlabanki Íslands vekur athygli á því á vef sínum í dag að óvenjuleg staða sé uppi í máli líftryggingarfélagsins NOVIS.
Tilkynnt var í júní í fyrra að Seðlabanki Slóvakíu (NBS) hafi tekið ákvörðun um að afturkalla starfsleyfi félagsins fyrir brot á skyldu með að fjárfesta ekki iðgjöldum viðskiptavina að fullu samkvæmt vátryggingarsamningnum.
Þrátt fyrir að yfir tíu mánuðir séu liðnir frá því að greint var frá þeirri ákvörðun hefur slitastjóri ekki enn verið skipaður yfir félaginu, sem Seðlabanki Íslands segir fordæmalaust.
Félagið var stofnað í Slóvakíu árið 2014 en var með vátryggingarstarfsemi í gegnum félagið Tryggingar og ráðgjöf á Íslandi. Þáverandi framkvæmdastjóri sagði í byrjun árs 2022 að íslenska félagið hafi selt tryggingar til tíu þúsund manns.
Staða viðskiptavina töluverðri óvissu háð
Í tilkynningu sem NBS birti í síðasta mánuði kemur fram að bankinn telji skipan slitastjóra nauðsynlegt skref til að tryggja hagsmuni vátryggingartaka, en að ekki sé hægt að segja til um hvenær dómstólar komist að endanlegri niðurstöðu um skipan slitastjóra í ljósi annarra dómsmála sem rekin eru í tengslum við afturköllunina.
Seðlabankinn bendir aftur á móti á að heimildir NBS til að hafa eftirlit með NOVIS séu takmarkaðar þar sem starfsleyfi félagsins hefur verið afturkallað. Akmennt sé gert ráð fyrir að slitastjóri sé skipaður í beinu framhaldi af afturköllun starfsleyfis.
„Staða þeirra sem hafa keypt vátryggingar NOVIS er því töluverðri óvissu háð og mun ekki skýrast fyrr en slitastjóri hefur verið skipaður. Gera þarf ráð fyrir þeim möguleika að það geti tafist enn frekar. Í ljósi þeirrar fordæmalausu stöðu sem uppi er hvetur Seðlabanki Íslands vátryggingartaka hjá NOVIS til að fara yfir skilmála samninga sinna og kynna sér þau úrræði sem þeim standa til boða,“ segir á vef Seðlabankans.
Meðal úrræða sem viðskiptavinum standi til boða sé að taka hlé frá greiðslu iðgjalda, leysa hluta inneignar út eða leysa út alla inneign sem til staðar er með því að segja upp vátryggingarsamningi. Jafnframt sé mikilvægt að hafa í huga að ákvæði skilmála vátryggingarsamninga kveða á um kostnað og gjöld sem dragast frá inneign vátryggingartaka.
„Seðlabankinn fylgist áfram náið með málum tengd NOVIS og mun veita uppfærðar upplýsingar eftir því sem framvinda þeirra gefur tilefni til. Seðlabanki Íslands áréttar þó að hann er ekki í stöðu til að veita vátryggingartökum ráðgjöf um einstaka samninga og/eða hvort rétt er að nýta framangreind úrræði,“ segir enn fremur á vef bankans.