Áfrýjunar­dómstóll í Bandaríkjunum hefur ákveðið að stað­festa lög­mæti víðtækra tolla Donald Trump Bandaríkja­for­seta tíma­bundið meðan á mála­ferli gegn þeim.

Mál­flutningur fyrir dómi fer fram þann 31. júlí en þangað til verða tollarnir áfram í gildi.

Úr­skurðurinn felur í sér tíma­bundna frestun á dómi al­ríkis­dómstóls í við­skipta­málum sem komst að þeirri niður­stöðu að Trump hefði farið út fyrir vald­heimildir sínar við að leggja á tollana.

Trump hefur í seinni for­setatíð sinni sett á fjölda tolla sem hluta af því sem hann kallar „frelsis­dag­s­tolla“, meðal annars gegn Kína, Mexíkó og Kanada, og rétt­lætt það með vísan til neyðar­laganna International Emer­gen­cy Economic Powers Act (IEEPA).

For­setinn segir tollana nauð­syn­lega til að bregðast við þjóðaröryggisógn af völdum fíkni­efna­smygls og við­skipta­halla.

Þessar ráð­stafanir hafa fengið harða gagn­rýni og þá hafa fimm lítil fyrir­tæki stefnt for­setanum sem telja hann hafa farið langt út fyrir sínar lög­bundnu heimildir. Dómur við­skipta­dómstólsins í maí stað­festi þau sjónar­mið og sagði að for­setinn gæti ekki, með vísan í IEEPA, sett á hvaða tolla sem honum hentaði, hvenær sem væri.

Niður­staða áfrýjunar­dómstólsins í dag þýðir að fyrir­tækin þurfa áfram að greiða tolla, þrátt fyrir að þeir kunni síðar að verða endur­greiddir.

Full­trúar fyrir­tækjanna segja það litlu skipta ef fyrir­tækin verði þá þegar farin á hausinn.

„Hver er gagn­semi endur­greiðslu ef fyrir­tækið sem greiddi tollana er orðið gjaldþrota?“ spurðu lög­menn þeirra í greinar­gerð til dómsins.