Kadeco og Reykjanesbær hafa komist að samkomulagi um að byggðar verða 800 íbúðir á Ásbrú á næstu árum. Upphaflega var áætlað að verkefnið myndi í fyrstu ná til 150 íbúða á Suðurbrautarreit, líkt og Viðskiptblaðið greindi frá fyrir ári síðan, en nú hefur er gert ráð fyrir að stækka verkefnið um allavega 150 íbúðir.

„Eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Suðurnesjum hefur aukist mikið og aðstæður á Ásbrú gera það að verkum að þar er hægt að byggja hraðar upp sjálfbært íbúðahverfi en víða annars staðar,“ segir í tilkynningu frá Kadeco.

Til stendur að undirritaður verði samningur milli Kadeco, Reykjanesbæjar og ríkisins á miðvikudaginn.

„Markmið samningsins er meðal annars að mæta aukinni eftirspurn eftir húsnæði, skapa fyrirsjáanleika og hefja þéttingu og þróun byggðar á Ásbrú.“