Íslensk stjórnvöld þurfa að nýta tækifærin í alþjóðstjórnmálum í dag til að efla tengslin við Grænland og tryggja fríverslunarsamning sem mun efla bæði efnahag Íslands og Grænlands, að mati Elds Ólafssonar, stofnanda málmleitarfélagsins Amaroq Minerals.
Í grein í Morgunblaðinu í dag útskýrir Eldur Ólafsson hvernig Grænland, sem stendur frammi fyrir möguleika á sjálfstæði, geti litið til reynslu Íslendinga sem nýttu hernaðarlegt mikilvægi landsins til að styrkja efnahag og tryggja sérstöðu í alþjóðaviðskiptum.
„Í framhaldi af afskiptum Churchill af Íslandi fjárfestu Bandaríkin í innviðum og herstöðvum hér á landi, sem reyndist ein stærsta uppspretta gjaldeyristekna Íslendinga á 20. öld,“ skrifar Eldur og bendir á hvernig Ísland nýtti alþjóðlega stöðu sína til að byggja upp sterk efnahagsleg tengsl.
Eldur tekur fram að Grænland eigi að nýta þessi tækifæri og sjá til þess að aukið samstarf við Ísland, bæði í efnahags- og varnarstefnu, verði tryggt með nýjum fríverslunarsamningi. Að hans sögn er fríverslunarsamningur Íslands og Grænlands „stærsta hagsmunamál Íslands á þessari öld.“
„Nú stendur Ísland frammi fyrir einu stærsta hagsmunamáli sínu: Að tryggja fríverslunarsamning við Grænland. Í dag njóta íslensk fyrirtæki umtalsverðra viðskiptatækifæra í Grænlandi, meira en grænlensk fyrirtæki nýta sér á Íslandi,“ segir Eldur.
„Nú þegar liggja fyrir mjög góðir samningar á milli ríkjanna byggðir á norrænu módeli. Með því að ramma inn fríverslunarsamning við Grænland styrkjum við samningsstöðu okkar gagnvart bæði Bandaríkjunum og Evrópu fyrir sambærilega samninga,“ útskýrir hann enn frekar.
Til að byggja upp sterkari tengsl og samvinnu við Grænlendinga segir Eldur að hægt sé að grípa til eftirfarandi aðgerða:
- Opna íslenskan markað fyrir grænlensk matvæli, til dæmis hreindýrakjöt.
- Veita grænlenskum sjúklingum aðgang að íslenskri heilbrigðisþjónustu, fjármagna sjúkraflug sem og að hjálpa til við að manna stöður á Grænlandi
- Styðja við uppbyggingu skóla, hitaveitna og annarra samfélagsinnviða á Grænlandi eins og t.d. Ístak hefur þegar verið að gera sem og Amaroq Minerals
- Veita Grænlendingum sömu réttindi og Íslendingar hafa á Íslandi og nýta íslenskar stofnanir í þágu Grænlendinga þeim að kostnaðarlausu
- Styðja við íþróttir, listir og menntun grænlenskra ungmenna í Grænlandi að íslenskri fyrirmynd
- Auka samstarf um flutninga, fjárfestingar og þjónustu til Grænlands í gegnum Ísland Þetta gerum við án þess að krefjast
„Þetta gerum við án þess að krefjast nokkurs til baka – því ávinningurinn er þegar til staðar. Íslensk fyrirtæki eru þegar leiðandi í sjávarútvegi, flutningum og innviðauppbyggingu á Grænlandi. Til að setja þetta í samhengi eru um 60-80% af fjárfestingu Amaroq tengd fólki og flutningum,” segir Eldur.
Að hans mati verður Grænland efnahagslega sjálfstæðara með auknu samstarfi og Ísland fengi enn sterkari stöðu í alþjóðaviðskiptum.
„Með því að ramma inn fríverslunarsamning við Grænland styrkjum við samningsstöðu okkar gagnvart bæði Bandaríkjunum og Evrópu fyrir sambærilega samninga. Slíkur samningur myndi leggja grunn að sterkari utanríkisstefnu Íslands sem mun gagnast komandi kynslóðum. Nýkjörinn forseti Bandaríkjanna hefur komið Grænlandi efst á dagskrá á undanförnum vikum og Íslendingar eiga að grípa það tækifæri sem hefur myndast í kjölfarið,“ skrifa Eldur.
„Íslensk stjórnvöld, bæði Alþingi og ríkisstjórn, ættu að taka þetta mál alvarlega og vinna markvisst að fríverslunarsamningi við Grænland. Þegar samningurinn verður undirritaður mun það efla stöðu Íslands í alþjóðaviðskiptum og skapa ný tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og almenning,“ skrifar Eldur að lokum.