Nýr Supercharger hraðhleðslugarður með 20 stöðvum hefur opnað við Flugvelli 25 í Keflavík en um er að ræða stærsta hleðslugarð Tesla til þessa.

Opnunin er hluti af rammaáætlun sem hefur verið gerð með N1 um opnun Tesla Supercharger hraðhleðslustöðva um land allt.

Nýju stöðvarnar, sem eru fjórðu kynslóðar stöðvar og kallast V4 Supercharger, skila allt að 250 kílóvatta hleðsluhraða og eru stórt framstökk í tækniþróun. Evrópsku V4 stöðvarnar eru einungis búnar CCS kapli fyrir bíla sem styðja við hraðhleðslu.

Allir Tesla Model 3 og Model Y, en einnig Model S og Model X sem afhentir voru frá og með fjórða ársfjórðungi árið 2022 á Íslandi styðja við CCS hleðslu.

Í tilkynningu segir að markmið Tesla sé að flýta fyrir orkuskiptum og með það að leiðarljósi hafa betrumbætur átt sér stað á hleðslustöðvum, sem eru einnig opnar öllum tegundum rafbíla.