Strætó hefur tilkynnt um gjaldskrárbreytingar sem taka gildi þann 8. janúar næstkomandi. Nemur hækkunin 3,1% á stökum fargjöldum og 3,7% á tímabilskortum.

Stakt fargjald fer þannig úr 650 krónum í 670 krónur og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 5.400 krónum í 5.600 krónur. Verð á Klapp plastkortum helst óbreytt eða 1.000 krónur.

„Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu var tekin af stjórn félagsins á fundi þess 13. desember sl. og er í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu þessa árs,“ segir í tilkynningu Strætó.

Þá mun Strætó hætta sölu dagpassa (24 klst. og 72 klst.) á komandi vikum en félagið segir Kapp greiðsluþak hafa komið í staðinn fyrir þær vörur. Ónotaðir 24 klst. og 72 klst. passar ógildast ekki.

Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni.