Starbucks hefur valið Fastus sem samstarfsaðila sinn á Íslandi og mun Fastus þá sjá um þjónustu og viðhald á kaffivélum og eldhústækjum á kaffihúsum Starbucks hér á landi. Starbucks opnar sín fyrstu kaffihús á Íslandi á næstu vikum.

Fastus sér fyrirtækjum og fagaðilum í heilbrigðis- og veitingageiranum fyrir tækjum, búnaði og rekstrarvörum.

„Það er okkur mikill heiður að hafa verið valin sem samstarfsaðili Starbucks. Tæknideild okkar mun sinna þjónustu og viðhaldi á kaffivélum og eldhústækjum fyrir staði þeirra hér á landi. Samstarfið byggir á fagmennsku, áreiðanleika og sérþekkingu sem falla vel að kröfum og væntingum einu virtasta kaffihúsamerki heims," segir Ástrós Kristinsdóttir, markaðsstjóri Fastus.

Hjá tæknideild Fastus starfa 50 sérþjálfaðir tæknimenn sem annast uppsetningar, viðhald og gæðaheimsóknir. Fastus rekur þá stærsta þjónustuverkstæði og varahlutalager landsins í þessum geira en verkstæðin eru staðsett í Reykjavík, á Akureyri og Selfossi.