Fjármálaráðherra hefur sett birt drög að frumvarpi í Samráðsgátt þar sem lagt er til að ríkissjóður ábyrgist 90% af fjárhæð stuðningslána til minni rekstraraðila í Grindavík sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Fjármálaráðherra mun gera samning við lánastofnanir um lánveitinguna og hvernig staðið verður að greiðslu ábyrgðar ríkissjóðs, ef til kemur.

Ríkisstjórnin kynnti um miðjan maí síðastliðinn tillögur um frekari stuðning við heimili og fyrirtæki í Grindavík, þar á meðal umrædd stuðningslán til grindvískra fyrirtækja.

Að hámarki 50 milljónir

Áformað er að fjárhæð stuðningsláns geti numið allt að fimmtungi af tekjum rekstraraðila á rekstrarárinu 2022. Fjárhæð lánsins getur þó að hámarki numið 50 milljónum króna.

Vextir lánanna skulu vera jafnháir vöxtum af sjö daga bundnum innlánum hjá Seðlabanka Íslands hverju sinni og lánið skal endurgreiða með jöfnum greiðslum síðustu 36 mánuði lánstímans, en lánstíminn er að hámarki 72 mánuðir.

Fram kemur að rekstraraðilar megi einungis nýta stuðningslánin til að standa undir rekstrarkostnaði eða til að byggja upp starfsemi á nýjum stað.

Rekstraraðilar þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að fá stuðningslán með ríkisábyrgð, samkvæmt frumvarpinu:

  • Rekstraraðili hafi verið með fasta starfsstöð í Grindavík 10. nóvember 2023.
  • Tekjur á rekstrarárinu 2022 hafi verið að lágmarki 15 millj. kr. og að hámarki 1.500 millj. kr. og að þær tekjur hafi dregist saman um 40% á einhverju 60 daga samfelldu tímabili eftir 10. nóvember 2023 til 10. október 2024.
  • Rekstraraðili hafi ekki greitt út arð eða kaupauka, keypt eigin hlutabréf eða gert aðra sambærilega gerninga frá 10. nóvember 2023 út þann tíma sem ábyrgðar ríkissjóðs nýtur við.
  • Rekstraraðili sé ekki í vanskilum með opinber gjöld eða skatta sem komin voru á eindaga fyrir 10. nóvember 2023.

Fjármálaráðuneytið segir að úrræðið eigi sér samsvörun í stuðningslánum sem voru veitt rekstraraðilum vegna Covid-faraldursins. Umfang þessa úrræðis sé hins vegar líklegt til að vera talsvert minna og því er ráðgert að öll umsýsla og yfirbygging vegna þess verði einfaldari.