Útgerðarfélagið Steinunn ehf. hefur lagt grunn að auknum umsvifum sínum í Ólafsvík með kaupum á fiskveiðiheimildum sem nema ríflega 100 þorskígildistonnum af Saltveri ehf. í Reykjanesbæ fyrir um 300 milljónir króna.

Kvótanum verður bætt við veiðiheimildir vertíðarbátsins Steinunnar SH-167 og aukast með þeim umsvif útgerðarinnar til muna ásamt verkefnum nálægrar landvinnslu. Samkvæmt tilkynningu eru kaupin gerð í framhaldi af sölu á 60% hlut í Steinunni til FISK Seafood fyrir tveimur árum.

„Þetta eru ákaflega ánægjuleg tíðindi. Íbúar í Ólafsvík og nágrenni hafa alla tíð verið stoltir af þessu rótgróna fjölskyldufyrirtæki enda hefur umgjörðin um reksturinn ávallt verið sannkölluð bæjarprýði. Það er greinilegt að með tengslunum við FISK Seafood verður engin breyting þar á og því ber að fagna,“ segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar.

Bræðurnir Brynjar og Ægir Kristmundssynir eiga ásamt fjölskyldum sínum hvor sinn 20% hlut í Steinunni hf. og segist Brynjar sannfærður um að þessi viðbót verði farsæl fyrir heimabyggðina.

„Tilgangurinn með sölunni og samstarfinu við FISK Seafood var frá upphafi að styrkja og stækka starfsemina hér í Ólafsvík. Nú eru fyrirheitin og markmiðin að raungerast og því ber að fagna. Útgerð Steinunnar hefur verið með ágætum síðustu árin, veiðarnar hafa gengið vel og fiskverð verið gott. Ég er sannfærður um að þessi fjárfesting verði enn frekari lyftistöng á komandi árum,“ segir Brynjar.