Stjórn Íslandsbanka hyggst boða til hluthafafundar þar sem stjórn og stjórnendur munu fjalla um framkvæmd bankans á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór hinn 22. mars í fyrra. Boðað verður til fundarins á næstu dögum.

Greint er frá þessu í fréttatilkynningu á vef bankans, þar sem segir jafnframt að ákvörðunin hafi verið tekin í kjölfar tilkynningar Bankasýslu ríkisins í dag þar sem óskað var eftir slíkum fundi.

Málefni Íslandsbanka vegna framkvæmdar útboðsins var áberandi í fjölmiðlum í dag í kjölfar birtingar samkomulags um sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabankans. Þar kemur m.a. fram að stjórnar­hættir Íslandsbanka hafi borið vott um skort á á­hættu­vitund. Þá bendi brot bankans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í sjálfum sér til veik­­leika í innra eftir­­lits­­kerfi.

Í fréttatilkynningu Íslandsbanka segir að bankinn og stjórnendur harmi mjög þau brot sem fram komi í sáttinni. Á hluthafafundinum verði farið ítarlega yfir málsatvik og þær úrbætur og breytingar sem þegar hafi verið gerðar eða séu í vinnslu.