Stjórn Íslandsbanka hefur móttekið bréf frá stjórn Arion banka þar sem lýst er yfir áhuga á samrunaviðræðum við Íslandsbanka. Stjórnin mun taka erindið til umræðu og ákveða næstu skref af hálfu bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.

Eins og Viðskiptablaðið greindi frá fyrir skömmu ákvað stjórn Arion banka á fundi sínum í dag að lýsa yfir áhuga á að hefja viðræður við stjórn Íslandsbanka um samruna félaganna og lýsti yfir áhuga þess efnis í bréfi til stjórnar Íslandsbanka.

Í tilkynningunni þess efnis sagði að Arion banki sjái mikil tækifæri í samruna bankanna fyrir viðskiptavini, hluthafa og íslenskt hagkerfi. Það sé staðreynd að þrátt fyrir fjölmargar hagræðingaraðgerðir íslenskra banka á undanförnum árum þá sé kostnaður fjármálakerfisins enn hlutfallslega hár hér á landi í alþjóðlegum samanburði. Það sé bæði vegna smæðar íslenska hagkerfisins og þeirrar staðreyndar að þrír stærstu bankar landsins eru allir flokkaðir sem kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki samkvæmt evrópskri löggjöf. Þeir þurfi því að uppfylla flókið og umfangsmikið regluverk Evrópusambandsins, sem sé samið með miklu stærri fjármálafyrirtæki í huga, auk séríslenskra reglna.