Stjórn Marels hefur sent frá sér tilkynningu vegna opins bréfs evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital Partners, eins stærsta hluthafa Marels með 3,3% hlut. Viðskiptablaðið fjallaði ítarlega um bréfið, sem inniheldur harða gagnrýni á stjórnarhætti Marels, fyrr í dag.

Stjórn Marels segist fagna opnu samtali við hluthafa félagsins, þar með talið Teleios. Marel hafi átt fjölmörg samtöl við Teleios frá því að þeir urðu fyrst hluthafar í félaginu og mun halda áfram að eiga í virku samtali við Teleios eins og alla hluthafa félagsins.

„Til að hámarka virði félagsins metur stjórn Marel með reglubundnum hætti stefnu félagsins, í samstarfi við ráðgjafa sína, með ýtrustu hagsmuni allra hluthafa og annarra hagaðila að leiðarljósi. Sú vinna felur í sér að fylgjast vel með þróun innan þess geira sem félagið starfar í, rekstrarafkomu Marel, og þeim tækifærum sem kunna að felast í frekari samþjöppun (e. consolidation) á markaði,“ segir í tilkynningu Marels.

Stjórnin segist áfram gæta „ýtrustu“ hagsmuna allra hluthafa og annarra hagaðila og jafnframt gæta að trúnaðarskyldu sinni gagnvart félaginu „eins og einróma ákvörðun stjórnar sem tekin var að vel athuguðu máli, um að hafna óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT sem birtist 24. nóvember 2023, ber með sér“.

JP Morgan er fjármálaráðgjafi Marels og lagalegir ráðgjafar eru Baker McKenzie í. Bandaríkjunum, BBA/Fjeldco á Íslandi og Osborne Clarke í Hollandi.