Hluti stjórnar VR hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um biðlaun fyrrverandi formanns félagsins, Ragnars Þórs Ingólfssonar sem jafnframt er núverandi þingmaður Flokks fólksins.
Í yfirlýsingunni kemur fram að málið hafi ekki verið tekið fyrir af stjórn áður en greiðsla fór fram.
Samkvæmt yfirlýsingunni hafa formenn VR almennt notið réttinda til biðlauna og undanfarin tuttugu ár hafa allir fráfarandi formenn misst embætti sitt í kosningum.
„Það er einsdæmi að formaður segi starfi sínu lausu til að taka við öðru launuðu starfi og réttindi til biðlauna hafa almennt ekki verið hugsuð fyrir slík tilfelli,“ segir í yfirlýsingunni.
Engu að síður var enginn fyrirvari í ráðningarsamningi frá 2017, frekar en í fyrri samningum.
Fyrrverandi formaður óskaði eftir eingreiðslu á biðlaunum sínum í janúar og fékk hana greidda síðustu mánaðamót. Stjórnin var hins vegar ekki upplýst um greiðsluna fyrir fram.
„Þegar nokkrir stjórnarmeðlimir komust að því í síðustu viku að fyrrum formaður hefði fengið greitt út 6 mánaða biðlaun í eingreiðslu síðustu mánaðamót var strax óskað eftir aukastjórnarfundi til að upplýsa alla stjórn um stöðu mála.“
Fimm meðlimir stjórnar og einn varamaður reyndu þó að stöðva fundinn en hann fór engu að síður fram 24. febrúar, eins og lög félagsins kveða á um.
Undirritaðir stjórnarmenn taka undir gagnrýni á að fyrrverandi formaður þiggi laun bæði frá Alþingi og VR. „Ekki síst þar sem hann hefur verið gagnrýninn á aðra einstaklinga sem hafa þegið biðlaun,“ segir í yfirlýsingunni.
Jafnframt kemur fram að stjórn VR hafi ekki vald til að rjúfa gildandi samninga, en að breytingar hafi nú verið gerðar. „Stjórn hefur tekið ákvörðun um að í framtíðinni falli biðlaunaréttindi fráfarandi formanna niður ef þeir hverfa til annarra starfa.“
Í lok yfirlýsingarinnar er áréttað að núverandi formaður VR hafi ekki komið að ákvörðunum um biðlaun eða uppgjör við fyrrverandi formann. „Hann vék af fundi, ásamt formannsframbjóðanda, þegar tekin var ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag biðlauna.“
Undir yfirlýsinguna rita átta stjórnarmenn og einn varamaður: Diljá Ámundadóttir Zoega, Gabríel Benjamin, Jennifer Schröder, Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Sigríður Lovísa Jónsdóttir, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, Vala Ólöf Kristinsdóttir og Þórir Hilmarsson.