Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Skúla Mogensen, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Wow Air, og fyrrverandi stjórnarmenn flugfélagsins af 18,5 milljóna evra skaðabótakröfu, eða sem nemur 2,6 milljörðum króna, fjárfesta sem tóku þátt í 50 milljóna evra skuldabréfaútboði Wow haustið 2018, nokkrum mánuðum fyrir fall flugfélagsins.
Dóminn má lesa hér.
Stefnendum er gert að greiða Skúla og dánarbúi Basil Ben Baldanza 7,5 milljónir króna í málskostnað hvorum um sig. Jafnframt ber stefnendum að greiða Liv Bergþórsdóttur, Helgu Hlín Hákonardóttur og Davíð Mássyni hverju fyrir sig 4 milljónir króna í málskostnað.
Málið var höfðað af ellefu aðilum, þar á meðal Kviku eignastýringu, Gamma Capital Management, Eaton Vance Management og Rea ehf., móðurfélagi Airport Associates. Þeir töldu að stjórnarmenn flugfélagsins hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi með því að veita sér rangar og villandi upplýsingar í aðdraganda útboðsins.
Héraðsdómur féllst ekki á að sýnt hafi verið fram á orsakasamband milli háttsemi stjórnenda og tjóns fjárfestanna.
Dómurinn féllst ekki á þá málsástæðu stefnenda að Wow Air hafi verið orðið gjaldþrota þegar skuldabréfin voru gefin út 21. september 2018 né að stefndu sem stjórnarmönnum félagsins hafi borið skylda til að gefa það upp til gjaldþrotaskipta á þeim degi sem það var gert.