Gunnar Sigvaldason, stjórnarmaður og eigandi 6,33% hlutafjár í Ísfélaginu, seldi á þriðjudaginn hlutabréf í félaginu fyrir 49 milljónir króna. Gunnar seldi alls 400 þúsund hluti á genginu 122,5 krónur á hlut.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Gunnar er þriðji stærsti einstaki hluthafi Ísfélagsins. Eftir söluna á hann 51,4 milljónir hluta í Ísfélaginu sem eru tæplega 6,3 milljarðar króna að markaðsvirði miðað við núverandi 122 króna markaðsgengi hlutabréfanna.
Gunnar, sem var fæddur 1938, var einn stærsti hluthafi Ramma sem sameinaðist Ísfélagi Vestmannaeyja undir merkjum Ísfélags árið 2023. Gunnar var framkvæmdastjóri Ramma á árunum 1997-2009 og tók í kjölfarið við sem stjórnarformaður Ramma.
Stærstu hluthafar Ísfélags 25. júní 2025
Í % |
49,13% |
11,42% |
6,33% |
4,02% |
3,20% |
2,26% |
1,81% |
1,74% |
1,64% |
1,37% |
1,12% |
1,00% |
0,86% |
0,86% |
0,86% |
0,80% |
0,62% |
0,61% |
0,40% |
0,36% |