Fimm stjórnendur og tengdir aðilar í tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds hf. tóku þátt í markaðsviðskiptum með hluti í félaginu í dag og keyptu samanlagt rúmlega 72,7 milljónir hluta að andvirði 109,6 milljóna króna.
Um er að ræða viðskipti tengd 300 milljón króna hlutafjáraukningu félagsins sem samþykkt var í síðustu viku.
Stærstu viðskiptin átti Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður félagsins, sem keypti í gegnum félagið 1961 ehf alls 53.440.667 hluti á genginu 1,50 krónur á hlut.
Samtals nam það viðskiptaverð rúmlega 80 milljónum króna, sem er það stærsta í þessari röð tilkynninga.
Fea ehf., í eigu Skúla Skúlasonar stjórnarmanns, keypti 13.333.333 hluti, einnig á genginu 1,50 kr. Áætlað kaupverð þessara bréfa er tæplega 20 milljónir króna.
Auk þeirra keyptu tveir lykilstjórnendur, Stefán Gunnarsson, forstjóri félagsins, og Stefán Dór Björnsson, fjármálastjóri, hvor um sig 2 milljónir hluta einnig á genginu 1,50 krónum. Samtals nema þessi viðskipti 6 milljónum króna.
Þá keypti Frigus ehf, félag sem Andrea Ólsen stjórnarmaður er framkvæmdastjóri yfir. Frigus keypti 2 milljónir hluta á sömu kjörum, að verðmæti 3 milljónir króna. Frigus er í eigu Lýðs Guðmundssonarþ
Viðskiptin fara fram í kjölfar nýlegs hlutafjárútboðs félagsins og virðast endurspegla trú stjórnenda á framtíð Solid Clouds.
Síðastliðinn föstudag var greint frá því að Solid Clouds hefði fengið undirrituð áskriftarloforð frá hæfum fjárfestum í nýtt hlutafé að andvirði 300 milljónir króna.
Alls bárust áskriftir í 200.607.335 hluti á genginu 1,5 krónur á hlut. Félagið tilkynnti í lok apríl að það hefði ákveðið að lækka útboðsgengið í fjármögnunarlotunni úr 2,25 krónum í 1,5 krónur á hlut.
Ofangreind hlutafjáraukning var háð samþykki hluthafafundar sem fór fram í dag.
Leikjafyrirtækið, sem er skráð á First North-markaðinn, lauk fyrr í ár útgáfu breytanlegra skuldabréfa að fjárhæð 175 milljónir króna.
Skuldabréfin eru á gjalddaga 15. september nk. og bera 15% fasta vexti og hafa breytirétt í hluti í félaginu miðað við gengið 1 króna fyrir hvern hlut nafnverðs.