Feðgarnir Skarphéðinn Berg Steinsson og Steinar Atli Skarphéðinsson hafa stofnað ráðgjafafyrirtækið Múlanes en fyrirtækið mun sjá um sérhæfða rekstrarráðgjöf fyrir ferðaþjónustu.
Skarphéðinn hefur áratuga reynslu úr fyrirtækjarekstri og opinberri stjórnsýslu. Áður var hann hjá Baugi Group og tengdum fyrirtækjum í tengslum við verslun, þjónustu, fasteignir og fjárfestingar.
Þar á undan var hann í stjórnunarstöðum í Stjórnarráðinu, bæði í fjármálaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu.
„Við feðgar höfum rætt þetta í talsverðan tíma að stofna saman ráðgjafafyrirtæki fyrir ferðaþjónustuna. Það má segja að samverustundir yfir sunnudagssteikinni undanfarin 10 ár hafi farið í að ræða ferðaþjónustuna og hvað hægt sé að bæta og gera enn betur,“ segir Skarphéðinn Berg.
Steinar hefur breiðan bakgrunn í ferðaþjónustu, smásölurekstri og hugbúnaðarþróun. Undanfarin ár stýrði hann hugbúnaðarþróun Origo á sviði ferðalausna og þá sérstaklega þróun bókunarkerfa og bættri sjálfvirknivæðingu.
Hann hefur víðtæka þekkingu á þróun greiðslulausna í ferðaþjónustu og hefur einnig unnið að eigin rekstri á sviði verslunar, fjártækni og ferðaþjónustu.
„Rekstrarráðgjöf í ferðaþjónustu hefur verið afar takmörkuð hér á landi. Með mikilli reynslu og þekkingu á ólíkum og fjölbreyttum viðfangsefnum ferðaþjónustunnar teljum við okkur geta lagt til góð ráð sem bæta rekstur og samkeppnishæfni fyrirtækja," bætir Skarphéðinn við.