Á undanförnum tólf mánuðum hefur orðið langsamlega mesta fjölgunin í nýjum störfum hér á landi hjá þeim sem vinna hjá hinu opinbera, að því er segir í grein á vef Samtaka iðnaðarins (SI).

Á undanförnum tólf mánuðum hefur orðið langsamlega mesta fjölgunin í nýjum störfum hér á landi hjá þeim sem vinna hjá hinu opinbera, að því er segir í grein á vef Samtaka iðnaðarins (SI).

„Hið opinbera hefur með þessum hætti viðhaldið þenslu á vinnumarkaði sem undanfarið hefur verið sögð hluti þess verðbólguvanda sem hrjáð hefur landsmenn og kallað hefur á háa stýrivexti. Snýr það bæði að fjölgun starfsmanna og launaþróun þar sem hið opinbera hefur á sumum sviðum verið leiðandi undanfarið.“

Samtökin vísa til gagna sem Hagstofa Íslands birti í gær þar sem fram kemur að starfandi einstaklingum í þeim hluta hagkerfisins sem snýr að einkageiranum fjölgaði um 1,5% í júlí frá sama mánuði í fyrra. Mældist vöxturinn 5,4% á sama tíma í fyrra.

„Öðru máli gegnir um hið opinbera. Vöxtur þess heldur áfram að því er virðist óháð efnahagsástandinu.“

Fjölgun starfandi einstaklinga hjá opinberum stofnunum og fyrirtækjum mældist 4,0% yfir síðustu tólf mánuði samkvæmt gögnum Hagstofunnar. Það samsvarar um 54% af heildarfjölgun starfandi á þessu tímabili. Hlutdeild hins opinbera af heildarfjölda starfandi nam á þennan mælikvarða 31% í júlí.

SI segja að ef horft sé til annars mælikvarða á umfangi hins opinbera sem nær til þess þáttar hins opinbera sem ekki er flokkað sem opinber fyrirtæki og stofnanir en er engu að síður fjármagnað að hálfu hins opinbera þá komi í ljós að fjölgun starfandi hjá þeim hluta hagkerfisins mældist í júlí 4,3% frá sama tíma fyrir ári. Þetta sé um 61% af heildarfjölgun starfandi í hagkerfinu.

„Það er því sama hvaða mælikvarða er horft á, niðurstaðan er sú sama.“