Strætó hefur ákveðið að hækka verð á stökum fargjöldum um 3,2% og á tímabilskortum um 3,85%. Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi á mánudaginn, 1. júlí.
Strætó hefur ákveðið að hækka verð á stökum fargjöldum um 3,2% og á tímabilskortum um 3,85%. Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi á mánudaginn, 1. júlí.
„Ákvörðun varðandi gjaldskrá Strætó er tekin af stjórn félagsins. Ástæðan fyrir hækkun á gjaldskrá er meðal annars til að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum hjá Strætó sem og hærri launakostnaði en einnig til að draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu Strætó.
Tekið er fram að verð á Klapp plastkortum haldist óbreytt eða 1.000 kónur.
Stök fargjöld fyrir og eftir breytingarnar
1. júlí |
650 kr. |
325 kr. |
325 kr. |
195 kr. |
Vegagerðin hækkar verð í Strætó á landsbyggðinni
Samhliða gjaldskrárhækkun Strætó hefur Vegagerðin ákveðið að hækka einnig verð fyrir stök fargjöld í Strætó á landsbyggðinni.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hækkunin nemi 5,3% og fer stakt fargjald úr 570 kr. í 600 kr. Verð á tímabilskortum mun haldast óbreytt.
„Sem dæmi fer ferð frá Reykjavík til Akureyrar úr 12.540 kr. í 13.200 kr. og ferð frá Reykjavík til Keflavíkur úr 2.280 kr. í 2.400 kr.“