Bara tala, Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Center Hotels hafa hafið samstarf um átak til að stuðla að aukinni notkun íslensku í ferðaþjónustu. Bara tala er stafrænn íslenskukennari sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni.
Heildarfjöldi innflytjenda sem starfar á Íslandi er 54.114 en í ferðaþjónustu starfa 14.062 innflytjendur. Upp á síðkastið hefur mikið verið rætt um stöðu íslenskunnar og kallað hefur verið eftir nýjum leiðum til að auka aðgengi þeirra sem starfa í ferðaþjónustunni að íslenskunámi.
Center Hotels hefur nú innleitt lausn Bara tala fyrir erlenda starfsfólkið sitt og nýlega gerði Berjaya Hotels slíkt hið sama. Hótelin tóku það skref að útbúa starfstengt íslenskunám sem verður hluti af Bara tala og þar með aðgengilegt öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum sem sækja þjónustuna. Þetta er liður í því að gera íslensku hærra undir höfði, að gefa erlendu starfsfólki lykil að samfélagi og stuðla að inngildingu.
„Það eru forréttindi að vinna með fjölbreyttum hópi starfsfólks sem kemur með reynslu og þekkingu alls staðar að. Center Hotels telur Bara tala vera mikilvægt tól til inngildingar, tækifæra og til að auka jöfnuð í íslensku samfélagi,” segir Eir Arnbjarnardóttir, mannauðsstjóri Center Hotels.
Í síðasta mánuði hlaut Bara tala viðurkenningu sem menntasproti atvinnulífsins. Í kjölfarið hafði Hæfnisetur ferðaþjónustunnar samband við þróunarteymi Bara tala og þar var samið um að Hæfnisetrið myndi deila fagorðalistum ferðaþjónustunnar.
„Við hjá Bara tala finnum fyrir miklum meðbyr og erum þakklát fyrir hlýjar móttökur. Það veitir okkur mikla gleði og fyllir okkur svo miklu stolti að sjá fólk nýta sér menntatæknilausnina okkar og finna að það nær árangri. Við vitum öll að íslenskan er lykillinn að samfélaginu,“ segir Jón Gunnar Þórðarson framkvæmdastjóri Bara tala.