Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti nýlega að hann myndi þiggja 400 milljóna dala Boeing 747-8 lúxusþotu frá konungsfjölskyldunni í Katar sem hann hyggst nota sem Air Force One.

Núverandi flugvélafloti Hvíta hússins samanstendur af tveimur 747-200 þotum sem hafa verið í notkun síðan 1990.

Að sögn Hvíta hússins verður flugvélin, sem gæti tekið nokkur ár og fleiri milljónir dala að endurnýja og uppfæra, flutt til forsetabókasafns Donalds Trumps þegar kjörtímabili hans lýkur.

Ákvörðun forsetans virðist hins vegar hafa sameinað bæði andstæðinga og stuðningsmenn forsetans sem líta á gjöfina sem mútugreiðslu eða dæmi um spillingu, sem Trump sjálfur hafði lofað að uppræta. Fréttamiðillinn BBC hefur tekið saman nokkur dæmi.

„Þeir eru að reyna að troða peningum í vasa með pólitískum hætti.“

Íhaldssami hlaðvarpsstjórinn Ben Shapiro hjá Daily Wire sagði í þætti sínum að konungsfjölskyldan í Katar væri ekki að gefa forsetanum 400 milljóna dala þotu af eigin góðmennsku. „Þeir eru að reyna að troða peningum í vasa með pólitískum hætti.“

Áhrifavaldurinn Laura Loomer, sem hefur kallað eftir því að reka embættismenn innan Hvíta hússins sem eru ekki nægilega tryggir Trump, gagnrýndi einnig gjöfina. Hún birti teikningu sem sýndi flugvélina sem Trójuhest, fulla af vopnuðum íslömskum skæruliðum.

Dagblaðið New York Post, sem er vanalega mjög dyggur stuðningsmaður forsetans, birti pistil frá ritstjóra blaðsins sem sagði að þotan væri ekki ókeypis gjöf og að Trump ætti ekki að líta á hana sem svo.

Útvarpsmaðurinn Mark Levin, sem er mikill stuðningsmaður forsetans á Fox News, skrifaði á samfélagsmiðlum að Katar væri ríki sem styddi við bakið á hryðjuverkamönnum. Álit hans endurspeglar álit Donald Trump frá fyrsta kjörtímabili sínu þegar hann sjálfur sakaði Katar um að fjármagna hryðjuverkasamtök.