Peningastefnunefnd bandaríska seðlabankans hefur tekið ákvörðun um að halda stýrivöxtum óbreyttum á bilinu 4,25% til 4,5%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni.
Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði vexti um samtals 100 punkta á síðasta ári. Greinendur gera ráð fyrir að vextir lækki um samanlagt 50 punkta á árinu. Allar líkur séu á að vextir haldist óbreyttir til sumars, í hið minnsta.
Öflugur vinnumarkaður er meðal þess sem kemur í veg fyrir að stýrivextir vestanhafs lækki eins ört og einhverjir höfðu vonast eftir. Atvinnuleysi mældist 4,2% í desember sl. og 256 þúsund ný störf bættust við í mánuðinum.
Til viðbótar við öflugan vinnumarkað telja margir hagfræðingar að efnahagsstefna Trump geti reynst verðbólguhvetjandi.
Vísitala neysluverðs í Bandaríkjunum hækkaði um 0,4% milli mánaða í desember og mældist verðbólgan á ársgrundvelli 2,9%. Þá lækkaði kjarnaverðbólga, sem undanskilur sveiflukennda vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, milli mánaða og mældist 3,2% á ársgrundvelli.
Verðbólgutölur vegna janúarmánaðar birtast 12. febrúar nk.
Krafðist vaxtalækkana
Donald Trump Bandaríkjaforseti vakti mikla athygli á efnahagsráðstefnunni í Davos á dögunum þar sem hann krafðist þess að vextir um allan heim yrðu lækkaðir strax. Honum varð ekki að ósk sinni að þessu sinni.
Peningastefnunefnd seðlabankans fundar á ný 19. mars. Næstu fundir þar á eftir verða haldnir 1. júní, 30. júlí, 17. september og 29. október. Síðasti vaxtaákvörðunarfundur ársins verður síðan haldinn 10. desember.