Verð á súkkulaði í Bretlandi hækkaði um 17,7% frá byrjun árs fram að maí en hækkunin hefur ekki verið meiri síðan 2016. Á vef BBC segir að verðbólga þar í landi hafi verið um 3,4% og hefur ekki verið hærri í ár.
Matvælaverð í Bretlandi hefur hækkað þrjá mánuði í röð og nam hækkunin 4,4% í maí. Sú tala hefur ekki verið hærri síðan í febrúar í fyrra.
Súkkulaðiverð hefur þó hækkað hvað mest en slæmt veður sem skall á Gana og Fílabeinsströndina hefur haft mikil áhrif á uppskeruna. Súkkulaðibirgðir voru í sögulegu lágmarki fyrr á árinu sem leiddi til mikillar verðhækkunar.
Verðhækkunin hefur einnig látið sjá sig hér á landi en fyrr í þessum mánuði birti RSV verðbólgutölur sem greindu frá því að verð á súkkulaði hafi hækkað um 22,7% á Íslandi.