Blue Heron Farm er stór og glæsileg eign í Martha’s Vineyard sem naut sérstakrar athygli þegar hún varð sumarheimili Barack Obama Bandaríkjaforseta og fjölskyldu hans.

Frá 2009 til 2011 dvöldu Obama-hjónin ásamt dætrum sínum í þessari 28 hektara sveitaeign í nágrenni smábæjarins Chilmark. Eignin var á þessum tíma oft kölluð „Sumarhvíta húsið“ og var miðstöð fjölmiðlaathygli í hvert sinn sem forsetafjölskyldan heimsótti staðinn.

Barack Obama heldur ræðu í garði Blue Heron Farm.
© epa (epa)

Blue Heron Farm er vel falin og býður upp margt. Nokkur íbúðarhús en aðalhúsið er 650 fermetrar að stærð, sundlaug, stóra hlöðu og víðáttumikil beitilönd við vatn, bátahús, tennisvöll og margt fleira. Obama fjölskyldan leigði eignina fyrir sumardvöl sína og naut friðhelgi og fegurðar náttúrunnar sem Martha’s Vineyard hefur upp á að bjóða.

Árið 2011 var Blue Heron Farm selt. Eigendurnir, sem sem Obama-fjölskyldan leigði húsið af þau þrjú sumur sem þau dvöldu þar, seldu hana til fjölskyldu breska arkitektsins Sir Norman Foster fyrir um 21,9 milljónir Bandaríkjadala, eða 2,8 milljarða króna.

Þessi sjón var algeng þegar Obama og fjölskylda dvöldu í Martha’s Vineyard.

Norman Foster, sem er stofnandi Foster + Partners og þekktur fyrir byggingar eins og Wembley-leikvanginn og "The Gherkin" í London, hefur síðan notað Blue Heron Farm sumarleyfisstað fyrir fjölskyldu sína.

Eignin er í dag til sölu fyrir 39 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur 5 milljörðum króna.