Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur ákveðið að setja af stað vinnu við að móta aðgerðir til að draga úr áhrifum flugs á Reykjavíkurflugvelli á nærsamfélagið, að því er segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Svandís stefnir á að mótun aðgerðanna verði gerð í samvinnu við Isavia og hins vegar í samráði við íbúa og hagaðila.
„Það er afar mikilvægt að eiga málefnalegt samtal um áhrif flugumferðar á nærsamfélagið hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég tel brýnt að finna nýjan samastað fyrir þyrluflug, sem hefur stóraukist á síðustu árum,“ segir Svandís.
„Samtímis þarf að vinna að markvissum aðgerðum til að draga úr hávaða á flugvellinum, sem er alltof mikill og með öllu ólíðandi.“
Fram kemur að Svandís hafi átt fund í morgun með forsvarsfólki frá íbúasamtökunum Hljóðmörk. Markmið samtakanna er að draga úr óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli, einkum það sem snýr að einkaflugvélum, þyrlum og einkaþotum. Að samtökunum standa m.a. úr Hlíðum, Miðbæ, Vesturbæ Reykjavíkur og á Kársnesi í Kópavogi.
