Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að hækka gildi sveiflujöfnunarauka úr 2% í 2,5% af innlendum áhættugrunni. Nefndin segir hækkunina vera til þess fallna að auka enn frekar á viðnámsþrótt fjármálafyrirtækja „í ljósi þeirrar áhættu sem byggst hefur upp og gæti raungerst á næstu misserum“. Ákvörðun nefndarinnar tekur gildi að 12 mánuðum liðnum.

„Bankarnir eru vel í stakk búnir til að mæta aukinni eiginfjárkröfu og viðhalda á sama tíma framboði lánsfjár. Sveiflujöfnunaraukinn er mikilvægur þáttur í viðnámsþoli bankakerfisins,“ segir í yfirlýsingu sem fjármálastöðugleikanefnd sendi frá sér í morgun.

Nefndin segir að fjármálakerfið á Íslandi standi traustum fótum. Rekstur kerfislega mikilvægra banka standi vel og eiginfjár og lausafjárstaða þeirra sé sterk. Fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja fari þó versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Einnig sé útlit fyrir að verðbólga verði þrálát og að greiðslubyrði lána þyngist.

„Sá vandi sem steðjar að fjármálafyrirtækjum á alþjóðlegum mörkuðum er áminning um nauðsyn þess að innlánsstofnanir búi yfir nægjanlegum styrk til að geta sinnt hlutverki sínu; að miðla lánsfé og greiðslum, greina og stýra áhættu með viðhlítandi hætti, jafnt í meðbyr sem mótbyr.“

Nefndin segir að í ljósi mikillar innlendrar eftirspurnar og þeirrar óvissu sem ríki um þróun á fjármálamörkuðum sé góður viðnámsþróttur innlendra fjármálafyrirtækja mikilvægur.

Fasteignaverð enn hátt á nær alla mælikvarða

Í yfirlýsingunni er einnig minnst á að á síðustu mánuðum hafi dregið úr spennu á íbúðamarkaði. Framboð hafi aukist og sölutími lengst. Fasteignaverð sé farið að lækka en er þó enn hátt „á nær alla mælikvarða Til marks um það er hlutfall fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu af byggingakostnaði með hæsta móti.“

„Lánþegaskilyrðin hafa dregið markvert úr áhættusömum lánveitingum. Einnig eru lánveitendur vel í stakk búnir til að draga úr greiðslubyrði með breyttu lánsformi. Fjármálastöðugleikanefnd áréttar mikilvægi þess að lánveitendur á íbúðalánamarkaði vinni með lántakendum, nú sem áður, til að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika eins og kostur er.“