Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) ætla að kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SKE) um álagningu dagsekta. Samtökin segja að engar sektir verði lagðar þar til niðurstaða áfrýjunarnefndar liggur fyrir um skyldu SVEIT til afhendingar gagnanna.
SKE tilkynnti í gær um að eftirlitið hefði ákveðið að að leggja dagsektir að fjárhæð einni milljón króna á SVEIT vegna meintra brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Málið varðar kvörtun ASÍ, Eflingar og Starfsgreinasambandsins vegna gerðar SVEIT á kjarasamningi við stéttarfélagið Virðingu.
Telja gögnin ekki eiga heima hjá Eflingu
SVEIT hafa sent frá yfirlýsingu þar sem samtökin segjast telja málið ekki eiga heima á borði Samkeppniseftirlitsins. Því til viðbótar telji SVEIT að stéttarfélögin, þ.m.t. Efling, geti ekki átt aðild að málinu.
„Samkeppniseftirlitið hefur ekki fallist á þau sjónarmið SVEIT. Í því felst að Efling fær nánast óheftan aðgang að málsgögnum á meðan á rannsókninni stendur. SVEIT hefur kært þann anga málsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.“
SVEIT hefur lýst því yfir gagnvart SKE að umbeðin gögn verði afhent þegar fyrir liggur úrskurður áfrýjunarnefndar um að ákvæði samkeppnislaga geti átt við um gerð kjarasamninga og að stéttarfélögin eigi aðild að málinu.
„Ástæðan er að SVEIT hefur frá upphafi leitast við að eiga samtal við Eflingu til að vinna að endurbótum í starfsgreininni, en ávallt talað fyrir daufum eyrum. Efling hefur frekar kosið að reka öll mál í fjölmiðlum. SVEIT telur hins vegar að gögnin, sem óskað var eftir, eigi ekki heima hjá Eflingu. Því hefur SVEIT ákveðið að nýta rétt sinn til að leita afstöðu áfrýjunarnefndar um þessi atriði, áður en lengra er haldið.“
SVEIT hafnar með öllu að hafa gert „gervi kjarasamning“ við Virðingu. Samningurinn sé að öllu leyti sambærilegur síðasta samningi MATVÍS og Samtaka atvinnulífsins „sem tryggir launafólki um margt betri kjör en samningur Eflingar gerir“.
„Þess utan er öllum frjálst að vera í því stéttarfélagi sem viðkomandi kýs, enda er félagafrelsi tryggt með ákvæðum stjórnarskrár.“