Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, hafa birt yfirlýsingu á heimasíðu sinni þar sem samtökin mótmæla ummælum Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna, sem sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að það liti út fyrir að verslanir á dagvörumarkaði hafi haft með sé „nokkurs konar þögult samkomulag“.

Tilefni viðtalsins var opnun Prís, verslunar sem Heimkaup rekur. Breki fagnaði innkomu Prís til að lækka vöruverð á dagvörumarkaði en það liti þannig út að „verslanirnar sem hafa verið fyrir á markaði, hafi haft með sér nokkurs konar þögult samkomulag um að hafa þetta eins og þetta er“.

SVÞ segja að ummæli Breka verða ekki skilin á annan hátt en að hann telji ráðandi fyrirtæki á dagvörumarkaði hafa átt með sér ígildi samráðs eða samstilltra aðgerða sem fara í bága við bannákvæði 10. gr. samkeppnislaga.

„SVÞ mótmæla framangreindum ummælum formanns Neytendasamtakanna. Formaðurinn færði hvorki nokkur rök máli sínu til stuðnings né gerði tilraun til að útskýra mál sitt nánar. Ummælin eru haldlaus. Til að mynda gefa afkomutölur fyrirtækja á dagvörumarkaði hið gagnstæða til kynna,“ segir í yfirlýsingunni.

„Í huga SVÞ er alvarlegt að formaður neytendasamtaka skuli hafa látið ummælin falla. Í þeim felst nokkuð harkaleg ásökun sem SVÞ fá ekki séð að eigi við nokkur rök að styðjast.“

Samtökin segja að aukin samkeppni sé af hinu góða og að fyrirsvarsmenn fyrirtækja á dagvörumarkaði hafi í viðtölum fagnað innkomu Prís á markaðinn.

Aukin verðsamkeppni komi neytendum ekki aðeins til góða heldur getur aukin samkeppni hvatt keppinauta á dagvörumarkaði til hagræðingar og nýsköpunar og þannig aukið skilvirkni markaðarins.