Sýn hefur lokið sölu á erlendri starfsemi dótturfélagsins Endor, sem starfar m.a. á sviði þjónustu við gagnaver, til Hexatronic Group. Kaupsamningur milli Sýnar og Hexatronic var undirritaður í dag en félögin höfðu undirritað viljayfirlýsingu um viðskiptin í júlí.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir að salan muni ekki hafa veruleg áhrif á rekstrarafkomu félagsins. Jafnframt segir í tilkynningu Sýnar að kaupin muni ekki hafa umtalsverð áhrif á afkomu Hexatronic.
Í heild muni færri en fimm starfsmenn flytjast yfir til Hexatronic.
„Við erum afar ánægð með að hafa lokið þessari sölu. Viðskiptin snerta aðallega alþjóðlega starfsemi Endor og stærri innlenda viðskiptavini sem nýta sér sérhæfðar miðlægar gagnaveralausnir. Innlendir viðskiptavinir Endor verða því að mestu leyti áfram þjónustaðir af Endor ehf.,“ segir Herdís Dröfn.
„Við erum sannfærð um að framtíðarsamvinna með Hexatronic muni enn frekar styrkja lausnaframboð Endor fyrir viðskiptavini þess.“
Sýn keypti íslenska upplýsingatæknifyrirtækið Endor árið 2019. Í nóvember 2022 ákvað Sýn að gefa Endor aukið vægi í starfsemi samstæðunnar og gerður var sérstakur þjónustusamningur milli félaganna til þess að hafa jákvæð áhrif á tekjur og afkomu Endor.
„Gagnaver eru eitt af vaxtarsvæðum okkar. Reksturinn sem við erum að kaupa einblínir á samþættar upplýsingatæknilausnir fyrir stærri fyrirtæki, sem er aðlaðandi hluti markaðarins og þýðir að við erum að auka vöruframboð okkar. Við erum ánægð með að bjóða nýja samstarfsfélaga velkomna til Hexatronic,“ segir Martin Åberg, aðstoðarforstjóri Hexatronic.