Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni frá tímabilinu 2025/26 til 2027/28. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni frá tímabilinu 2025/26 til 2027/28. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Stöð 2 Sport, sem er í eigu Sýnar, var með sýningarrétt á Ensku boltanum á árum áður en Síminn hefur verið sýningarréttinn frá og með tímabilinu 2019/20.

„Með því að tryggja okkur réttinn að enska boltanum er mikilvægum áfanga náð og við ætlum okkur að sinna þessu verkefni af þeim mikla metnaði og ástríðu sem einkennir Stöð 2 Sport. Með kaupunum sjáum við mikil tækifæri fyrir félagið Sýn í heild,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.

Sýn segist ætla að veita nánari upplýsingar um fyrirkomulag sjónvarpsáskrifta og vöruframboð verða veittar þegar nær dregur.

„Við á Stöð 2 sport erum himinlifandi með að hafa endurheimt enska boltann. Við hlökkum til að gera sterkustu deild heims eins góð skil og mögulegt er með okkar hæfileikaríka fólki og leyfa landsmönnum öllum að njóta þess að sitja í besta sætinu með okkur á Stöð 2 Sport,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, forstöðumaður íþróttadeildar Sýnar.