Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru 230.500 manns á aldrinum 16–74 ára að jafnaði á vinnumarkaði á fjórða ársfjórðungi 2024. Af þeim voru 223.800 starfandi og 6.800 án vinnu og í atvinnuleit.

Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 77,7% og atvinnuleysi var 2,9% af öllum 16-74 ára á vinnumarkaði.

Á fjórða ársfjórðungi 2024 voru þá 101.100 konur starfandi eða 72,6% en karlar voru 122.700 eða 82,6%. Á fjórða ársfjórðungi 2024 voru að jafnaði 197.900 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 88,4% starfandi fólks og 68,8% af heildarmannfjölda 16–74 ára.

Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 36,5 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 40,6 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,5 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

„Samanborið við fjórða ársfjórðung 2023 fjölgaði starfandi fólki um 4.500 en hlutfall starfandi af mannfjölda stóð nánast í stað. Fjöldi starfandi kvenna fækkaði um tæplega 100 á meðan körlum fjölgaði um nálega 4.600.“

Hlutfall starfandi kvenna lækkaði því um 1,3 prósentustig á meðan hlutfall starfandi karla jókst um eitt og hálft prósentustig.

Atvinnuleysi dróst saman þegar á heildina er litið um 0,3 prósentustig, 0,3 hjá konum og 0,2 hjá körlum. Atvinnulausum konum fækkaði um 300 á milli ára og körlum um 100 manns.