Reykjavíkurborg segir í tilkynningu að parísarhjól verði sett upp á Miðbakka í sumar. Um tilraunaverkefni til eins sumars er að ræða og mun Taylors Tivoli Iceland ehf. annast bæði uppsetningu og rekstur á parísarhjólinu.

Borgin auglýsti í mars eftir samstarfsaðila til að reka parísarhjól við Reykjavíkurhöfn. Að sögn Reykjavíkurborgar var mikill áhugi á verkefninu og bárust alls fjórar umsóknir.

Taylors Tivoli Iceland varð fyrir valinu en fyrirtækið á önnur parísarhjól og hefur reynslu bæði af rekstri þeirra og af rekstri tívólís á Miðbakka.

„Gengið hefur verið úr skugga um að búnaðurinn þoli íslenskar aðstæður, þar með talið vindálag og jarðhræringar. Áhersla verður lögð á góða hljóðvist í kringum parísarhjólið og verða framkvæmdar hljóðmælingar á prufutímabilinu,“ segir jafnframt í tilkynningu.