Útgáfufyrirtækin Universal Music Group, Warner Music Group og Sony Music Group eru nú í viðræðum við tvö sprotafyrirtæki, Suno og Udio, um það hvernig listamenn muni fá greitt fyrir hljóðblöndur sem eru búnar til með notkun gervigreindar.
Á vef WSJ segir að viðræðurnar gætu verið fordæmisgefandi en útgáfufyrirtækin segjast vilja fá greitt þegar tónlist listamanna þeirra er notuð til að þjálfa gervigreindarlíkön sem eru síðan notuð til að framleiða nýja tónlist.
Til að geta metið það hversu mikið listamenn og útgáfufyrirtæki eiga að fá vilja fyrirtækin að Suno og Udio þrói nokkurs konar fingrafarakerfi til að rekja hvenær og hvernig ákveðin lög eru notuð. Svipað kerfi er nú þegar til að mynda notað á YouTube.
Sumir af frægustu og vinsælustu listamönnum heims eins og Taylor Swift, Drake og Ed Sheeran eru öll skráð hjá þessum þremur útgáfufyrirtækjum. Þau vilja einnig vera virkir þátttakendur í framleiðslu nýs efnis þar sem gervigreind kemur við sögu.
Suno og Udio halda því fram að tækni þeirra hafi það markmið að skapa nýtt efni og segjast þau tryggja að líkönin brjóti ekki gegn höfundarrétti listamanna.
Samtök tónlistariðnaðarins í Bandaríkjunum (e. Recording Industry Association of America) höfðuðu engu að síður mál gegn fyrirtækjunum í júní í fyrra og fullyrtu að verið væri að brjóta gegn höfundarrétti.