Tekjur af erlendum ferðamönnum á fyrsta ársfjórðungi 2025 námu 108,5 milljörðum króna miðað við 103,8 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að frá apríl 2024 til mars 2025 hafi tekjur jafnframt numið 623,8 milljörðum króna.

Fjöldi starfandi einstaklinga í greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 29.741 í apríl 2025 sem er 1% samdráttur samanborið við apríl 2024.

Í greiningu Hagstofunnar segir jafnframt að gistinætur á hótelum í apríl 2025 hafi verið 369.411 samanborið við 331.880 í apríl 2024.

Í maí voru 226.257 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 210.872 í maí 2024. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru þá 159.384 samanborið við 157.366 í maí 2024.