Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2022 var jákvæð um 5,2 milljarða króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 810 milljónir króna árið 2021, að því er segir í fréttatilkynningu‏.

Isavia ohf. tapaði hins vegar 617 milljónum króna eftir skatta samanborið við 321 milljónar hagnað árið 2021. Það má einkum rekja til neikvæðra gengisáhrifa á langtímalán sem námu 868 milljónum króna á árinu 2022 samanborið við jákvæð gengisáhrif upp á tæpa 2 milljarða króna árið á undan.

Þá voru til staðar einskiptis vaxtatekjur upp á 2,8 milljarða króna árið 2021 vegna afgreiðslu virðisaukaskatts fyrri ára.

75% tekjuaukning

Tekjur Isavia jukust um 75% eða 15,7 milljarða króna milli áranna 2022 og 2021 og námu tekjurnar um 95% af tekjum ársins 2019.

Farþegar um Keflavíkurflugvöll voru ríflega 6,1 milljón í fyrra samanborið við rúmlega 2,1 milljón árið 2021 og rúmar 7,2 milljónir farþega árið 2019 sem var síðasta heila rekstrarárið fyrir heimsfaraldur.

„Árið 2022 markaði þann viðsnúning sem beðið var eftir að loknu tveggja ára óvissutímabili heimsfaraldurs,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Ísland er sem fyrr einstakur áfangastaður og tengistöðin áfram lykillinn að flugtengingum sem styðja við lífsgæði og velsæld á Íslandi.“

Sveinbjörn bendir á að nú í vetur hafi verið 12% meira sætaframboð til og frá Keflavíkurflugvelli en síðasta veturinn fyrir heimsfaraldurinn. „Á flugvöllunum í Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi og Helsinki, sem við berum okkur gjarnan saman við, hafi verið 8-25% minna sætaframboð.“

Aðalfundur Isavia verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 22. mars og þá verður ársskýrsla félagsins fyrir árið 2022 gefin út.

Lykiltölur úr ársuppgjöri Isavia 2022

  • Tekjur: 36.505 milljónir króna
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA): 5.165 milljónir króna
  • Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) : 1.233 milljónir króna
  • Heildarafkoma (tap) eftir skatta: - 617 milljónir króna
  • Handbært fé: 9.495 milljónir króna
  • Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum: 15.088 milljónir króna
  • Eigið fé í lok tímabils: 41.962 milljónir króna
  • Eiginfjárhlutfall: 44,5%