Marel hagnaðist um 3,8 milljónir evra, eða um tæplega 575 milljónir króna, á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við 10,1 milljónar evra hagnað á sama tímabili í fyrra. Marel birti uppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag.
Tekjur Marels á þriðja ársfjórðungi námu 387 milljónum evra, eða um 58 milljörðum króna, og drógust saman um 4,1% milli ára. Fram kemur að mótteknar pantanir hafi hins vegar aukist milli ára, einkum vegna pantana fyrir stærri verkefni í alifuglaiðnaði. Staða pantanabbókarinnar sé þó áfram lág.
„Búist er við aukningu í mótteknum pöntunum á komandi ársfjórðungum. Þörf er á frekari vexti pantanabókar til að styðja við tekjuvöxt og bætta rekstrarafkomu.”
EBIT-framlegð Marels var 9,4% á þriðja ársfjórðungi 2024, samanborið við 9,1% á öðrum fjórðungi 2024, og 9,0% á þriðja fjórðungi 2023.
„Uppgjör þriðja ársfjórðungs endurspeglar áherslur og aðgerðir félagsins til að bæta skilvirkni og hagræða í rekstri á tímum áskorana í ytra umhverfi,“ segir Árni Sigurðsson, forstjóri Marels.
„Það er ánægjulegt að framlegð síðustu tveggja fjórðunga hækkar þrátt fyrir lægri tekjur á þriðja ársfjórðungi sem sýnir glöggt þann árangur sem náðst hefur í bættum rekstri félagsins.“
Marel staðfestir horfur sínar fyrir rekstrarárið 2024 og reiknar með að EBIT-framlegð verði á bilinu 9-10% og að hóflegur samdráttur verði í tekjum á milli ára.
Árni segir að fyrirhugaðri sameiningu við JBT miði vel áfram og stefnt sé að því að gengið verði frá viðskiptunum eigi síðar en 3. janúar 2025. Gildistími yfirtökutilboðs JBT var framlengdur til 20. desember næstkomandi, líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í dag.
„Það eru sterk rök fyrir sameiningu félaganna og ég er fullur tilhlökkunar að grípa þau tækifæri sem munu skapast í framhaldinu fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa okkar. Saman munum við halda áfram að sækja fram og ná árangri á grundvelli viðamikillar þekkingar og reynslu beggja félaga, Marel og JBT,“ segir Árni.