Seðlabankastjóri Tékklands hefur tilkynnt um metnaðarfullar áætlanir um að fjárfesta allt að 5% af 140 milljarða evra gjaldeyrisforða landsins í Bitcoin. Bankinn yrði sá fyrsti í hinum vestræna heimi til að eiga rafmyntir.

Aleš Michl, sem skipaður var í embætti seðlabankastjóra Tékklands árið 2022, hyggst leggja þetta til á fundi stjórnar Seðlabankans á morgun, að því er kemur fram í grein Financial Times.

Sér til stuðnings bendir Michl á aukinn áhuga BlackRock og annarra fjármálastofnana á rafmyntinni og áherslu nýs Bandaríkjaforseta á að draga úr regluverki í rafmyntageiranum.

Þess má geta að samsetning eignasafns tékkneska seðlabankans er nokkuð ólík því sem almennt þekkist hjá vestrænum seðlabönkum. Þannig er 22% af eignasafni bankans hlutabréfaeign.

Það má segja að Michl horfi á rafmyntina með öðrum hætti en kollegar hans í Evrópu og Bandaríkjunum.

Jay Powell seðlabankastjóri Bandaríkjanna sagði í desember að það stæði ekki til að bæta rafmyntinni við eignasafn bankans. Joachim Nagel seðlabankastjóri Þýskalands hefur líkt Bitcoin við rafræna túlípana. Þar vísar hann til Túlípanabólunnar svokölluðu sem átti sér stað í Hollandi snemma á 17. öld. Þá hafa stjórnendur Evrópska seðlabankans sagt raunvirði Bitcoin vera ekkert. Rafmyntin sé hvorki góð fjárfesting né nothæfur gjaldmiðill.