Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, segir bankann sjá bæði hagræðingartækifæri og tækifæri til sóknar með mögulegum samruna við Kviku banka. Hann telur að Kvika falli betur að Íslandsbanka heldur en Arion.

„Kvika banki hefur verið sprækur í fjártækni og er auk þess með öfluga erlenda lánastarfsemi. Íslandsbanki er stærri banki með mikinn fjölda af viðskiptavinum. Okkar slagkraftur gæti nýst enn betur með Kviku innan samstæðunnar,“ segir Jón Guðni í samtali við Viðskiptablaðið.

Báðir bankar séu öflugir í eignastýringu en á mismunandi sviðum og falli því vel að hvor öðrum að sögn Jóns Guðna. Hann telur auk þess að bankarnir passi vel saman menningarlega.

Stjórn Íslandsbanka óskaði í morgun eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður á milli félaganna tveggja. Tilkynning Íslandsbanka fylgdi í kjölfar þess að Arion óskaði eftir samrunaviðræðum við Kviku banka eftir lokun Kauphallarinnar í gær.

Forsvarsmenn Íslandsbanka hafa að undanförnu lýst yfir áhuga á ytri vexti. Jón Guðni sagði í viðtali við Viðskiptablaðið fyrr í mánuðinum að bankinn sjái helst tækifæri í fjáramálatengdri þjónustu, þá einkum á sviði eignarstýringar og trygginga. Að sama skapi hafi bankinn horft til vaxtar á erlendri grundu en aðeins 2% af lánabók bankans er til erlendra fyrirtækja.

Mögulegur samruni við Kviku banka ætti því að geta stutt við markmið bankans um að styrkja eignastýringarsvið og erlenda lánastarfsemi hans. Kvika er með starf­semi í Bret­landi í gegnum félagið Ortus sem sér­hæfir sig í fast­eigna­veðlánum. Lána­bók Ortus nam um 40 milljörðum króna í lok fyrsta árs­fjórðungs.

Gátu brugðist hratt við

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 5.995 kr. á mánuði