Terra Einingar ehf., dótturfyrirtæki Terra umhverfisþjónustu, hefur fest kaup á öllu hlutafé Tæki.is ehf. Samkeppniseftirlitið heimilaði viðskiptin í dag.

Tæki.is, sem var stofnað árið 1999, sérhæfir sig í tækjaleigu til fyrirtækja og einstaklinga og á félagið fjölda af vinnuvélum til útleigu, svo sem vinnulyftur, jarðvinnuvélar, lyftara og smágröfur.

Félagið velti 586 milljónum króna árið 2024, sem samsvarar 2,9% vexti frá fyrra ári. Hagnaður félagsins nam 26 milljónum í fyrra. Eignir í árslok 2024 námu 830 milljónum króna og eigið fé var um 268 milljónir króna.

Tæki.is eru í 40% eigu Þorsteins A. Péturssonar, 40% eigu Ragnheiðar Pálsdóttur og 20% eigu Örvars Þorsteinssonar.

Um er að ræða önnur yfirtaka Terra Eininga á einu ári en félagið keypti einnig Öryggisgirðingar ehf., sem býður upp á heildarlausnir á girðingum, hliðum og aðgangskerfum.

Terra Einingar, sem sérhæfir sig í einingalausnum í formi húseininga og geymslulausna, velti 1,1 milljarði króna samanborið við 824 milljónir árið 2023. Hagnaður félagsins nam 271 milljón króna. Eignir í árslok 2024 námu 4,3 milljörðum og eigið fé var tæplega 1,8 milljarðar króna.

GÞ Holding, móðurfélag Terra umhverfisþjónustu, er í 65% eigu framtakssjóðsins SÍA III og 35% eigu fjárfestingafélagsins Barone I ehf. sem er í 58% eigu Gnitaness ehf. og 42% eigu Fiskisunds. Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play á óbeinan 32,3% hlut í Barone I ehf.