Drift EA hefur nú valið 18 frumkvöðlaverkefni sem halda áfram í nýsköpunarferlinu Slipptakan 2025. Alls bárust 27 umsóknir og lýkur svo ferlinu með lokakynningu þann 26. júní nk.
Slipptakan er hraðbraut fyrir frumkvöðla þar sem teymin fá stuðning við þróun viðskiptahugmynda, mótun viðskiptalíkans og undirbúning kynninga.
Í kjölfarið verður svo valið hvaða verkefni komast áfram í Hlunninn, stuðningsvettvang Drift EA, sem býður meðal annars upp á skrifstofuaðstöðu, handleiðslu, sérfræðiráðgjöf, vinnustofur og aðstoð við fjármögnun í allt að 12 mánuði.
Teymin sem halda áfram eru:
- Norðursnakk: Þróa matvæli úr innlendum hráefnum með áherslu á aðgengi og bragðgæði.
- ProtOrka - raforka í prótín
- Flandrið app: Afþreyingarapp með spurningaleik, ferðaleiki, kort og hlaðvarp fyrir börn.
- Orkey: Orkey framleiðir lífdísil úr notaðri steikingarolíu.
- PT Assistance: Stafræn lausn sem styður sjúkraþjálfara við að búa til sérsniðnar æfingaáætlanir sem skjólstæðingar fá í appi.
- Þín Eign: Varan er app/síða þar sem þú setur inn það viðhald sem hefur verið gert við húsnæðið þitt. Sama hvort það sé eigandi eða iðnaðarmaður getur næsti eigandi að húsnæðinu séð hvað sé búið að gera, hver gerði það og hvenær.
- SkynRó: Hversdagslegur fatnaður með skynörvandi eiginleikum. Sérsniðið að þörfum einstaklinga sem ýmist sækja í eða forðast skynáreiti.
- Mannkennd: Mannkennd bókaútgáfa. Þýðing og útgáfa á barnabókum um fötlunarfjölbreytileika.
- Kolefnisfrítt vetni og rafeldsneyti: Kolefnisfrítt vetni og rafeldsneyti.
- GGA ehf.: Alþjóðlegt lögfræðinet byggt á veflausn sem tengir lögmannsstofur í mismunandi löndum og gerir þeim kleift að veita lögfræðiþjónustu yfir landamæri.
- Affordable Iceland: Ný vefsíða sem ætluð er ferðamönnum sem koma til Íslands. Við ætlum að hjálpa ferðamönnum að skipuleggja ferðina sína út frá hagkvæmileika og einfaldleika.
- Norðan-straumur: Færanleg og skalanleg upptökulausn fyrir streymis- og myndefnisgerð. Hún veitir rauntímaútsendingar og hágæða myndefni frá íþrótta-, menningar- og samfélagsviðburðum sem oft fara framhjá hefðbundnum miðlum.
- Snjallvefjan: SnjallVefjan er fræðslu- og þjálfunarþjónusta sem styrkir fólk í stafrænni hæfni og stuðlar að virkari þátttöku í samfélagi, námi og starfi.
- Freelance Pay: FreelancePay býður upp á einfalda, altæka þjónustu fyrir verktaka.
- Verkbókahaldskerfi: Verkbókhaldskerfi sem einfaldar tímaskráningu, reikningagerð og utanumhald fyrir iðnaðarfyrirtæki.
- Kex: Þar sem fortíðin mætir framtíðinni! Á Akureyri opnar nýr og einstakur vettvangur fyrir sköpun og stíl. Kex er bæði vintage verslun og skapandi vinnustofa – fyrsta sinnar tegundar í bænum.
- KFA Lyftinganet: Kjarnaþjónusta KFA Lyftinganetsins.
- Hrísey Distillery: Eimingarhús sem framleiðir sterkt áfengi.
Slipptakan var fyrst haldin árið 2024 með 14 þátttakendateymum en á þessu ári virðist áhuginn hafa aukist og eru þátttökuteymi nú 18 talsins.
„Við erum ótrúlega stolt af því að sjá aukinn fjölda umsókna og þátttakenda í ár. Það er skýr vísbending um öfluga frumkvöðlastarfsemi og nýsköpunarhugsun á Norðurlandi,“ segir Sesselja I. Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Drift EA.