Dagana 8. og 9. febrúar hittust 10 teymi í lokakeppni Gulleggsins á vinnustofu þar sem farið var yfir þróun viðskiptamódela, framsetningu og framkomu. Þau teymi eru nú komin í úrslit og munu keppa í lokakeppni Gulleggsins á föstudaginn.

Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin er í upphafi hvers árs og haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups síðan 2008.

Í tilkynningu segir að helgin hafi verið þétt skipulögð með fjölbreyttri fræðslu og æfingum með það að markmiði að skerpa á viðskiptahugmyndum þátttakenda og undirbúa þau fyrir lokasprettinn í Gullegginu.

Laugardagurinn hófst á hópefli þar sem teymin kynntu sig og hugmyndir sínar. Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri KLAK, leiddi vinnustofur um Lean Canvas og Jobs to be Done.

Oddur Ólafsson hjá Horseday deildi sinni reynslu sem frumkvöðull og var Alma Dóra Ríkharðsdóttir, stofnandi Heima, með ítarlega vinnustofu þar sem var meðal annars farið yfir hvernig á að búa til sterkar kynningar.

Á sunnudeginum þjálfaði leikkonan María Ellingsen teymin í að koma hugmyndum sínum á framfæri á áhrifaríkan hátt. Valur Þór Gunnarsson, stofnandi Taktikal og fyrrum Gulleggskeppandi, sagði einnig frá sinni reynslu og frumkvöðlavegferð í kjölfar keppninnar.

Teymin 10 sem keppa um Gulleggið í ár:

VitalSync

Gústav Arnar Magnússon og Kristján Örn Aðalbjörnsson

„Markmið VitalSync er að lengja sjálfstæða búsetu aldraðra.”

Hvað nú?

Erna Niluka Njálsdóttir og Guðrún Heimisdóttir

„Hvað nú? einfaldar syrgjendum úrlausn hinna fjölmörgu verkefna sem fylgja andláti ástvinar með því að veita upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð í ferlinu sem tekur við.”

Coliva

Elísabet Reynisdóttir og Eyþór Arnar Ingvarsson

„Coliva eru kollagenmunnpúðar.”

„Viti er leikjaforrit sem hjálpar notendum að fylgjast með hugrænni heilsu í gegnum skemmtilega og örvandi leiki.”

SamFam

Brynja Bjarnadóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir

„SamFam er fyrsta val foreldra þegar þau leita að ráðum eða upplýsingum.”

VITI

Júlía Sóley Gísladóttir, Fehima Líf Purisevic, Ingibjörg Sigurðardóttir og Katla Rut Robertsdóttir Kluvers

„Viti er leikjaforrit sem hjálpar notendum að fylgjast með hugrænni heilsu í gegnum skemmtilega og örvandi leiki.”

SamVís

Birgir Bragi Gunnþórsson, Einir Sturla Arinbjarnarson, Haukur Ingi Sigrúnar Jónsson og Jóhann Tómas Portal.

„SamVís er framtíð vísindalegrar gagnasöfnunar, þar sem hefðbundnar leitarvélar kveðja bransann og víkja fyrir öflugri gervigreindarlausn sem finnur, greinir og tengir þekkingu á áður óþekktan hátt.”

Planda

Brynja Rún Sævarsdóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Rakel Hrönn Sveinsdóttir og Björk Gunnarsdóttir

„Planda er byltingarkenndur samfélagsmiðill; minni skjátími - fleiri gæðastundir.”

pilot bloks

Davíð James R Berman, Þór Fjalar Hallgrímsson, Kristinn Roach Gunnarsson og Wioleta Zelek

„Pilot bloks er stýrikerfi fyrir gatnalýsingu byggt á opnum hugbúnaði.”

SagaReg

Guðjón Ásmundsson og Ómar Ingi Halldórsson

„Markmið Saga Reg er að einfalda lyfjaskráningar.”

Huddle-Hop

Anoop Ajaya Kumar Nair, Moses Osabutey og Ahmad Iftikhar Khan

„HuddleHop makes travel in Iceland smarter, cheaper, and greener.”