Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur samþykkt tímabundna niðurfellingu á gatnagerðargjöldum. Þetta kemur fram á heimasíðu Þingeyjarsveitar og segir að tíðindin muni vonandi liðka til fyrir þeim sem vilja byggja í sveitinni.

„Íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og samhliða því orðið sífellt meiri eftirspurn eftir húsnæði. Vegna þessarar miklu eftirspurnar samþykkir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tímabundna heimild til niðurfellingar gatnagerðagjalda.“

Sveitastjórnin hefur einnig samþykkt ákvæði um úthlutun íbúðarhúsalóða í Þingeyjarsveit. Þar munu umsækjendur hafa sex mánuði frá úthlutunardegi til að skila inn fullnægjandi byggingarnefndarteikningum og umsókn um byggingarleyfi.

„Byggingaframkvæmdir skulu hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skulu hafa hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðagjalda,“ segir jafnframt.