Tveir þingmenn og þrír varaþingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um útboð á rekstri Isavia á flugstöð Keflavíkurflugvallar. „Verði Keflavíkurflugvöllur rekinn með blönduðu rekstrarfyrirkomulagi væri hægt að auka samkeppnishæfni flugvallarins í þágu neytenda,“ segir í greinargerð tillögunnar.
Með tillögunni vill hópurinn fela fjármála- og efnahagsráðherra að gera nauðsynlegar ráðstafanir svo að bjóða megi út rekstur, viðhald og uppbyggingu Isavia ohf. á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það eigi m.a. við um rekstur verslana með tollfrjálsar vörur, starfsemi sem er í beinum tengslum við flugrekstur ásamt rekstri flugvalla og flugstöðvar.
„Keflavíkurflugvöllur gegnir þýðingarmiklu hlutverki hér á landi. Um hann ferðast nær allir þeir erlendu ferðamenn sem heimsækja Ísland. Þrátt fyrir þetta segir í samkeppnismati OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði frá 2020 að Keflavíkurflugvöllur sé einn óhagkvæmasti og dýrasti flugvöllur í Evrópu, jafnvel í samanburði við flugvelli af sömu stærð sem taka á móti svipuðum fjölda farþega og starfræktir eru við sambærilegar veðurfarsaðstæður,“ segir í greinargerðinni.
Jafnframt sé rekstur hins opinbera hlutafélags Isavia sá óhagkvæmasti í samanburði við rekstur allra annarra flugrekstraraðila í Evrópu. „Líkur séu á að núgildandi regluverk og fyrirkomulag eignarhalds á flugvöllum hérlendis stuðli að þessari niðurstöðu.“
Með þingsályktunartillögunni væri hægt að taka fyrsta skref í átt að breyttri skipan eignarhalds eða að útboðs á rekstri flugvallarins. Þessar leiðir gætu aukið hvata Isavia á Keflavíkurflugvelli til að draga úr kostnaði og auka samkeppnishæfni, í samræmi við tillögur OECD.
Milljarðar af almannafé í rekstur flugstöðvar?
Bent er á að fjárþörf Isavia verði mikil á næstu árum „og vafamál er hvort réttlætanlegt sé að nota almannafé í áhætturekstur líkt og rekstur flugstöðvar“. Þannig hafi nýtt hlutafé upp á fjóra milljarða króna verið greitt úr ríkissjóði til Isavia í fyrra.
„Fram kemur í ársskýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2021 að félagið telji sig þurfa að lágmarki 12–18 milljarða kr. í nýju hlutafé á næstu tveimur árum til að standa undir nauðsynlegum fjárfestingum.“
Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar eru Friðjón R. Friðjónsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Björgvin Jóhannesson, Arnar Þór Jónsson.
Þau taka fram að tillagan miði ekki að því að rekstur, viðhald og uppbygging Keflavíkurflugvallarins sjálfs sem borgaralegs flugvallar verði boðin út, né heldur nýting hans í þágu öryggis- og varnartengdri starfsemi. Einungis sé um að ræða rekstur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.