Thomas Skov Jensen, framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann mun starfa áfram hjá bankanum þar til gengið hefur verið frá ráðningu eftirmanns.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallarinnar.
Thomas hefur hjá starfað hjá Kviku banka og forvera hans, MP banka, frá árinu 2007 og sem framkvæmdastjóri áhættustýringar frá árinu 2008.
Í tilkynningu þakkar Ármann Þorvaldsson, sem var nýverið ráðinn forstjóri Kviku, Thomasi fyrir samstarfið í gegnum árin.
„Thomas hefur starfað hjá Kviku og forvera bankans frá árinu 2007 og sem forstöðumaður og síðar framkvæmdastjóri áhættustýringar frá árinu 2008 þar sem hann hefur byggt upp öfluga deild og reynst farsæll leiðtogi í gegnum þær miklu breytingar sem félagið hefur farið í gegnum á undanförnum árum. Ég vil þakka Thomasi fyrir frábært samstarf í gegnum árin og vel unnin störf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.“