Þorsteinn Skúli Sveinsson, fyrrverandi sérfræðingur hjá VR, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla í morgun.

Þorsteinn Skúli er einstaklingurinn sem hefur tilkynnt um framboð til formanns hjá VR en kosningar fara fram hjá stéttafélaginu í mars. Halla Gunnarsdóttir, núverandi formaður, og Bjarni Þór Sigurðsson, sem situr í stjórn verkalýðsfélagsins, hafa einnig gefið kost á sér.

Þorsteinn starfaði hjá VR frá 2007 til 2021 og lengst af sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Eftir 14 ár hjá VR réð hann sig til starfa sem lögfræðingur hjá Sameyki stéttarfélagi. Þaðan lá leið hans til Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Í dag starfar Þorsteinn Skúli á mannauðs- og stefnusviði Byko.

Þorsteinn Skúli er 38 ára Hafnfirðingur og býr með eiginkonu sinni og þremur börnum í Hafnarfirði. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 en árið 2019 sótti hann sér viðbótar nám í mannauðsstjórnun frá sama skóla.

Helstu áherslumál Þorsteins Skúla eru eftirfarandi:

  • Að setja á stofn leikskóla fyrir börn félagsfólks VR á aldrinum 12-24 mánaða.
  • Að jafna rétt félagsfólks með því að varasjóður verði lagður niður í þeirri mynd sem hann er í dag og teknir upp fastir styrkir.
  • Að þungaðar félagskonur fái auka 4 vikur við hefðbundinn veikindarétt á launum.
  • Að félagsfólk geti ráðstafað launuðu leyfi vegna veikinda barna hvort heldur sé vegna veikinda barna/maka/foreldra.
  • Að unnið sé áfram í jöfnun réttinda milli hins almenna og opinbera vinnumarkaðs, til að mynda með 36 stunda vinnuviku og 30 daga orlofi fyrir allt félagsfólk.
  • Að eiga stöðugt samtal við stjórnvöld og samningsaðila vegna bættra kjara félagsfólks.

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti formanns VR í formanns- og stjórnarkosningum sem fram fara innan félagsins í mars næstkomandi. Ég vil endurvekja rödd félagsfólks og vinna markvisst að bættum kjörum og jöfnuði. Sjálfur er ég vel kunnugur starfsemi VR þar sem ég átti fjórtán farsæl starfsár hjá félaginu og starfaði þar af lengst sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Ásamt því hef ég starfað sem lögfræðingur hjá Sameyki, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og í dag á mannauðs- og stefnusviði BYKO. Þessi reynsla hefur gefið mér góða innsýn í að sitja beggja vegna borðsins og dýrmætan skilning á þörfum félagsfólks," segir Þorsteinn Skúli.

„Sem formaður VR mun ég leggja áherslu á jöfnuð og bætt kjör fyrir öll. Ég vil skapa VR sem sameinar ólíkar raddir og tryggja það að félagsfólk á öllum aldri finni fyrir því að starfað sé í þeirra þágu. Ég mun fylgja eftir mikilvægum málum sem fyrrum formenn og öflugt starfsfólk félagsins hefur unnið að á síðustu árum. Má þar m.a. nefna uppbyggingu húsnæðis fyrir félagsfólk VR (Blævar), kjör hinna lægst launuðu, starfsmenntamál og mikilvægi þess að jafnrétti sé gætt í hvívetna hjá hinu almenna félagsfólki.

Ég tel það grundvallaratriði að formaður VR sé óháður pólitík og einbeiti sér alfarið að málefnum félagsfólks. Þannig tryggjum við opið og gagnsætt samtal við stjórnvöld, óháð því hvaða flokkar eru við völd og megum við aldrei láta pólitískar skoðanir skyggja á hagsmuni félagsfólks. Það er mér hjartans mál að skapa sanngjarna og sterka framtíð fyrir félagsfólk og mun ég leggja mig allan fram í þetta mikilvæga hlutverk," segir hann ennfremur.