Teya á Íslandi, sem áður hét SaltPay, hagnaðist um 2,6 milljaða króna á síðasta ári samanborið við 820 milljóna hagnað árið áður.

Hreinar rekstrartekjur félagsins drógust saman milli ára og námu 2,1 milljarði króna á síðasta ári.

Eignir námu tæplega 18 milljörðum króna og eigið fé tæplega 9 milljörðum í lok síðasta árs. Brian Jeffrey Gross tók við stöðu forstjóra Teya í nóvember 2023, en hann tók við stöðunni af Jónínu Gunnarsdóttur.

Teya keypti Borgun vorið 2020 og var endanlegt kaupverð 27 milljónir evra.

Teya Iceland

2024 2023
Hreinar rekstrartekjur 2.106 2.873
Eignir 17.780 20.530
Eigið fé 8.980 6.359
Hagnaður 2.590 820
Lykiltölur í milljónum króna.