Ferðalög Evrópubúa til Bandaríkjanna hafa dregist verulega saman undanfarin misseri. Sumir vilja meina að stjórnmál séu að leiða þessa þróun en á síðu Travel and Tour World segir að fleiri Evrópubúar kjósi frekar að fara til Kanada, Mexíkó, Brasilíu og Karíbahafsins.

Í mars á þessu ári fækkaði flugferðum frá 22 Evrópulöndum til Bandaríkjanna verulega og stuðlaði það að 11,6% samdrætti í ferðalögum innan Bandaríkjanna miðað við sama tíma í fyrra.

Evrópa hefur lengi verið mikilvægur markaður fyrir ferðamenn sem ferðast til Bandaríkjanna, bæði vegna magns og útgjalda. Í vor fór þessi þróun hins vegar að minnka og af þeim 33 Evrópulöndum sem voru tekin fyrir höfðu 22 þeirra skráð samdrátt í ferðum.

Þýskaland, sem hefur yfirleitt verið eitt mikilvægasta land fyrir bandarískan ferðamannaiðnað, leiddi lækkunina með 28,5% samdrætti. Tölur frá Lúxemborg voru enn hærri en sú þjóð sá 44% samdrátt.

Ferðalög Íslendinga til Bandaríkjanna drógust saman um 36,6% í mars á þessu árir miðað við sama tíma í fyrra.

„Ísland, sem hefur einnig verið mikilvægur markaður, skráði 36,6% samdrátt. Ofan á það var 34,5% samdráttur hjá Danmörku, 27,6% samdráttur hjá Ungverjalandi og 26,9% samdráttur hjá Írlandi,“ segir í greiningu.